Nýsköpunarvefur

Nýsköpun í opinberum rekstri

Hvað er nýsköpun í opinberum rekstri?

Nýsköpun í opinberum rekstri felur í sér að skapa nýjar lausnir og bæta það sem er til staðar í starfsemi opinberra stofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga. Þetta á meðal annars við um nýja og endurbætta þjónustu eða vöru, tækni, aðferðir, stjórnskipulag, verklag og verkferla.

Smelltu hér til að fræðast frekar um nýsköpun í opinberum rekstri

Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri

Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri var haldin 3. nóvember 2011 á Grand Hótel Reykjavík. Á ráðstefnunni voru nýsköpunarverðlaun í opinberum rekstri afhent, vefsíða um nýsköpun í opinberum rekstri opnuð og kynntar voru niðurstöður norrænnar rannsóknar um nýsköpun í opinberum rekstri. Meðal fyrirlesara voru Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Edwin Lau sérfræðingur frá OECD, Ómar H. Kristmundsson prófessor og Þorsteinn Gunnarsson, sérfræðingur hjá Rannís. Eftir ráðstefnuna var haldið málþing þar sem tilnefnd verkefni voru kynnt.

Hér má sjá myndbönd af erindum ráðstefnunnar

Dagskráin á pdf-formi

Nýsköpunarverðlaun afhent 3. nóvember

Í ágúst síðastliðnum sendu fjármálaráðuneytið og Félag forstöðumanna erindi til forstöðumanna þar sem óskað var eftir að þeir tilnefndu verkefni til nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri. Áskilið var að verkefninu hefði verið hrint í framkvæmt á síðustu tveimur árum og að skilgreindum faglegum og fjárhagslegum ávinningi hefði verið náð. Hver stofnun mátti tilnefna allt að fimm verkefni. Skilafrestur var til 1. október og bárust 40 verkefni frá 24 stofnunum.