Nýsköpunarvefur

Nýsköpun

Almenn umræða um mikilvægi nýsköpunar í opinbera geiranum hefur aukist verulega síðustu ár á alþjóðavísu. Ýmsar stofnanir og samtök helga sig því hlutverki að finna nýjar lausnir við samfélagslegum úrlausnarefnum.  Fjöldi skýrslna hafa verið birtar og vefsíður opnaðar um efnið á síðastliðnum árum.  Flest stjórnvöld í hinum vestræna heimi sýna nýsköpun í opinberum rekstri mikinn áhuga og hefur það orðið að sérstöku stefnumáli í nokkrum ríkjum.

Alþjóðlega fjármálakreppan hefur að vissu leyti gert það að verkum að nýsköpun í opinberum rekstri er að fá aukna athygli og vægi í stefnumálum ríkja. Nýsköpun í opinberum rekstri er ekki lengur afgreidd sem skemmtileg stjórnunarhugmynd heldur viðurkennd sem nauðsynlegt viðbragð við breyttum aðstæðum í opinberri stjórnsýslu og rekstri. Flest ríki þurfa að draga ríkisútgjöld verulega saman á sama tíma og borgararnir fara fram á aukna þjónustu frá opinberum aðilum. Nýsköpun getur verið, ef rétt er á málum haldið, lausn á einhverjum af þessum erfiðleikum.

 

Mynd af krítarteikningu af ljósaperu