Lögreglustjórinn á Hvolsvelli hlýtur Nýsköpunarverðlaun í opinberum rekstri 2011 vegna verkefnisins:
Skipulag rýminga vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli. Samstarf íbúa og almannavarnayfirvalda
Verkefnið felur í sér að gera viðbúnaðar- og rýmingaráætlun vegna yfirvofandi náttúruvá af völdum eldsumbrota í Kötlu og Eyjafjallajökli í samstarfi íbúa og almannavarnayfirvalda.
Í umsögn dómnefndar um verkefnið segir:
„Notuð var ný og árangursrík aðferð til að leita samráðs við borgarana, fá hugmyndir og byggja upp samvinnu við þá til að bregðast við yfirvofandi umhverfisvá. Það skilaði sér í aukinni samábyrgð og valdeflingu borgaranna við að leysa vandasamt og flókið verkefni. Verkefnið mætti þörfum skilgreinds hóps sem skilaði góðum árangri þegar á reyndi og skipti þá miklu máli. Verkefnið felur í sér afar vel heppnað samráð við íbúa til að mæta öryggisþörfum og skipuleggja viðbúnað sem hægt er að yfirfæra í ríkari mæli á aðra þætti opinberrar starfsemi.“
Viðurkenningar
Að auki veitti dómnefndin eftirtöldum verkefnum sérstaka viðurkenningu:
Örnefni á vefnum - Nýjar aðferðir við söfnun og miðlun. Frá Landmælingum Íslands.
Landmælingar Íslands hljóta viðurkenningu fyrir nýsköpunarverkefnið Örnefni á vefnum - Nýjar aðferðir við söfnun og miðlun. Í umsögn dómnefndar um verkefnið segir:
„Um er að ræða nýja aðferð við að safna og miðla upplýsingum á gagnvirkan hátt í gegnum vefinn. Verkefnið þótti hafa mikið nýsköpunargildi. Um er að ræða virkilega frumleg tæki, annars vegar örnefnatól til að skrá örnefni og hins vegar örnefnasjá til að finna örnefni á tilteknum landsvæðum í gegnum veraldarvefinn. Verkefnið hefur þó nokkuð almannagildi og getur nýst bæði Íslendingum sem og erlendum borgurum. Jafnframt er þetta gagnvirka upplýsingatæki mikilvægur þáttur í grunnstarfsemi Landmælinga Íslands.“
Yfirfærsla bókakosts Blindrabókasafns Íslands yfir á stafrænt form. Frá Blindrabókasafni Íslands.
Blindrabókasafn Íslands fær viðurkenningu fyrir nýsköpunarverkefnið Yfirfærsla Bókakosts Blindrabókasafns Íslands yfir á stafrænt form. Bókakostur safnsins er yfirfært af hljóðsnældum yfir á stafrænt form í þeim tilgangi að taka upp nútímalegri og hagkvæmari dreifingarleiðir. Í umsögn dómnefndar um verkefnið segir:
„Verkefnið felur í sér mikla nýbreytni í starfsemi stofnunarinnar og nýja nálgun sem þýðir umbyltingu í þjónustu við skjólstæðinga stofnunarinnar. Með verkefninu er innleidd ný tækni fyrir þjónustu stofnunarinnar og hún þróuð í samvinnu við utanaðkomandi aðila. Úrlausnin hefur mikil áhrif á störf í stofnuninni og hefur vinnusparnað í för með sér. Verkefnið felur í sér að fleiri hópar geta nýtt sér þjónustuna og notkun þessarar tækni má yfirfæra á aðra og ólíka þætti opinberrar starfsemi.“
Notkun samfélagsmiðla (Facebook og Twitter) á sviði löggæslu. Frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær viðurkenningu fyrir nýsköpunarverkefnið Notkun samfélagsmiðla (Facebook og Twitter) á sviði löggæslu, en það felur í sér markvissa notkun á þekktum samfélagsmiðlum með það að markmiði að auka sýnileika lögreglunnar, efla upplýsingamiðlun til almennings og auka aðgengi að lögreglunni. Í umsögn dómnefndar um verkefnið segir:
„Þetta er frumleg nálgun sem felur í sér þá nýjung að opna á milliliðalaus gagnvirk samskipti opinberrar stofnunar við borgarana með því að taka í notkun samskiptamiðla sem stór hluti almennings hefur þegar tileinkað sér. Verkefnið eykur á tilfinningu um samábyrgð almennings og yfirvalda við að halda uppi lögum og reglu og auka öryggi í samfélaginu auk þess sem það eykur skilning á störfum lögreglunnar. Árangur hefur ekki verið formlega metinn, en hefur ásýnd trausts, gagnsæis og samábyrgðar. Aðrar stofnanir geta yfirfært þessar hugmyndir á starfsemi sína.“
Dómnefnd Nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri 2011
Í dómnefnd sátu: Ásta Möller og Ómar H. Kristmundsson frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Pétur Berg Matthíasson frá fjármálaráðuneytinu, Þorsteinn Gunnarsson frá Rannís, Anna Birna Þráinsdóttir frá Félagi forstöðumanna ríkisstofnanna og Gunnlaugur B. Hjartarson frá ICEconsult fyrir hönd Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands.
Hér má sjá myndbönd af erindum ráðstefnunnar