Nýsköpunarvefur.is er vefsíða tileinkuð nýsköpun í opinberri stjórnsýslu og opinberum rekstri. Á þessari vefsíðu má finna upplýsingar um hvað nýsköpun sé, hvernig hægt er að framkvæma hana og hvaða kostum nýsköpun býr yfir. Á síðunni má finna fjölmarga tengla á aðrar vefsíður sem og ábendingar um lesefni um nýsköpun.
Fjármálaráðuneytið í samstarfi við Félag forstöðumanna, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir ráðstefnu um nýsköpun í opinberri stjórnsýslu 3. nóvember næstkomandi. Á vefsíðunni er einnig að finna tilnefningar til nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri sem veitt verða á ráðstefnunni.
Hrefna Ástmarsdóttir, stjórnmálafræðingur og starfsmaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, tók saman efni sem sett var á vefinn.